Tónlistarsmiðjan

ENDANLEGT PRÓGRAMM FYRIR TÓNLEIKANA 8 OG 9 JÚNÍ. 2007


DAGSRKRÁ 8 OG 9 JÚNÍ.

TÓNLISTARSMIÐJAN.

Sigga Rún á bassa, kassagítar og fiðlu.

Brynjar Friðrik á rafgítar, kassagítar og trommur.

Davíð Helgi á trommur og hljómborð.

Elvar á rafgítar og kassagítar.

Anna Soffía á slagverk.

1. Elín. Ekkert breytir því.

2. Kristófer. Nakinn.

3. Þorbjörg. Án þín.

4. Helena. Can you feel the love.......

5. Erna Sigga og Fjóla. Traustur vinur.

6. Hafrún. Still havent found you.

7. Þorbjörg. My happy ending.

8. Hafliði. My bonny.

9. Hafrún Basket Case.

10. Fjóla. Wonderful too night.

11. Margrét Sif og Elín. Hvar sem ég fer.

12. Elín. Tide is high.

13. Þóra Kristín. Hlustað á regnið.

Hlé.

1. Margrét og Helena. Hjá þér.

2. Þorbjörg. Blame it on the sun

3. Þóra kristín. Fall too pieces.

4. Elín. Ruby Tuesday.

5. Jón Ásþór. Sódóma.

6. Kristófer. Undir þínum áhrifum.

7. Hafliði. Save the laste dance.....

8. Hafrún. Yellow.

9. Erna Sigga og Helena. Ó, María.

10. Þóra kristín. Svo smá

11. Fjóla. Starlight.

12. Þorbjörg. Ég veit að þú kemur.
 

                                             Tónleikar 4.janúar 2007.

Frábærir tónleikar sem við byrjuðum með á nýja árinu sem bar yfirskriftina "ROKKUM ÚT JÓLIN"  Efnisskráin var fjölbreytt..og gestasöngvarar voru: Bylgja Steingrímsdóttir, Hafliði Jósteinsson og Sigurður Illugason. Þökkum við þeim fyrir frábæra skemmtun.

Bráðlega förum við að starta nýju þema og þá koma til liðs við okkur margir nýjir söngvarar sem voru hjá okkur á söngnámskeiði í okt. sl. og stóðu sig vel.

Lögin sem flutt voru voru þessi: Og í sviga eru nöfn söngvarana.

1.  Sem aldrei fyrr.  (Elvar)

2.  Basket case         (Kalli)

3.  Stórir strákar     (Kalli)

4.  Blindsker            (Kalli)

5.  Skapar fegurðin...(Sylvía)

6.  Talað við gluggann. (Helga Dagný)

7.  Fallegur dagur.    (Elín)

8.  Ég veit að þú kemur  (Bylgja)

9.  Með þér. (Bylgja)

10.Kaupmaðurinn á horninu.  (Bjarki)

11.Yellow   (Bjarki)

12. Angelína     (Hafliði)

    13.Glókollur    (Hafliði)

14.Litla ljúfan sæta  (Hafliði)

15.Börn Guðs  (Margrét Sif og Elín)

16.Wonderful too night   (Siggi Illuga)

17.Hvar sem ég fer          (Siggi Illuga)

18.Kveðja    (Elvar)

 

 

Styrktartónleikar 1.des. tókust vel.

 (2.des. 2006)

Tónleikar í gær tókust vel og allir sem lögðu hönd á plóginn stóðu sig frábærlega. Við þökkum þeim listamönnum kærlega fyrir þeirra innlegg, en þeir eru:  Kiddi Halldórs, Frímann og Esther, Hafliði Jósteins, Bjarki Sveins,  Addi (lögga) og  kynnirinn Guðni Braga.   Hljómsveitin frá Tónlistarsmiðjunni stóð sig vel eins og ævinlega:)   Við hefðum nú viljað sjá fleiri á þessum tónleikum, held að um 40 manns hafi mætt en við höfum verið með húsið fullt í þau skipti sem við höfum haldið tónleika.  Næst á dagskrá smiðjunnar er að halda jólatónleika í kirkjunni og þar munu koma fram: Elvar, Brynjar Friðrik og Sigga Rún. 3 gítarar og spila jólalög.  Verður án efa falleg stund.

 

Góð messa í gær og æfingar framundan fyrir tónleika.        

(26.nóv. 2006)   

Æðruleysismessa  gékk fínt í gær og stóðu þeir sig vel strákarnir, Elvar og Brynjar og fóru faglega með gítarana.  Ekki voru nú margir í messu, 14 manns og þá presturinn talinn með....hehehe. En þetta var ljúf stund. Nú verður æft fyrir tónleikana sem verða 1.des. Styrktartónleikar .  Í dag mæta Addi og Hafliði til að æfa sín lög og verður örugglega stuð í húsinu. Efa það ekki, alltaf stuð og bara gaman.  Tek væntanlega eitthvað af myndum og set í albúm hér á heimasíðunni. Hægt er að kíkka á myndbönd af messunni í gær á myndbandalinknum.                                                                                                                                                     

Æðruleysismessa n.k. laugardag, 25.nóv. kl. 16.                                          

(22.nóv. 2006)

Elvar Bragason og Brynjar Friðrik Pétursson munu spila næsta laugardag í kirkjunni í æðruleysismessu.  Kapparnir munu þar spila á gítara, falleg trúarleg lög og Elvar syngur.  Hægt er að kíkja á æfingu hjá þeim í myndbandalinknum. 

Síðan verða æfingar settar á fullt í sambandi við 1.des tónleikana.

Styrktartónleikar 1.desember.
Sunday, Nov 19, 2006

Styrktartónleikar verða 1.desember kl. 20. Eigum nú von á því að leikhúsið fyllist af fólki og styðji tónlistarsmiðju okkar, svo við getum haldið áfram að vinna með unglingum við tónlist og söng.  Þeir sem koma fram á þessari skemmtun eru:  Addi (lögga) Hafliði Jósteins, Bjarki Sveinsson og þeir sem spila undir hjá þessum 3 köppum eru meðlimir í hljómsveit tónlistarsmiðjunnar.  Elvar Braga á rafgítar, Sigga Rún á bassa, Brynjar Friðrik á gítar og Davíð Helgi á trommurnar.

Aðrir sem koma fram eru: Kiddi Halldórs og Frímann (kokkur)

Prógrammið er fjölbreytt, erlend og íslensk lög og meira að segja jólalög slæðast þarna með   Nefna má lög eins og: September ends  Kyrrlátt kvöld -  það er gott að elska ? Sem aldrei fyrr -    Gleði og friðarjól - Litla sæta ljúfan góða ? Glókollur ? Angelía -Reyndu aftur ? Jólin koma og Ást við fyrstu sýn svo eitthvað sé nefnt.

Hér má sjá 2 dæmi af æfingum.

http://www.youtube.com/watch?v=K6v8FKvMFE0

http://www.youtube.com/watch?v=yC1Ssf50O38

 

 
03:54 PM (UTC -5)
 
Videobrot af æfingum!
Saturday, Oct 21, 2006

Hér mun ég setja videobrot af æfingum

Hér er verið að æfa lagið Tide is high með Blondie.

http://www.youtube.com/watch?v=goS_kLjmNAk

Hér er verið að æfa lag með Trúbrot og Jet black joe.

http://www.youtube.com/watch?v=sgWpvIf3N2I

 
10:26 AM (UTC -4)
 
Söngnámskeiði lokið.
Thursday, Oct 19, 2006

Síðasti tíminn var í kvöld og sjáum við fram á öfluga söngvara sem verður gaman að vinna með. Ein hefur bæst í hópinn, Hafrún Kolbeinsdóttir.  Það var frábært að sjá muninn frá því á fyrstu æfingu og svo núna, þau efldust við hverja æfingu.  Vá....hvað þau eiga eftir að verða flott þegar tónlistarsmiðjan verður komin á fullt í janúar.  Hljómsveitin sem skipa: Elvari, Siggu, Brynjari Friðrik, Davíð Helga og Sigþóri munu æfa núna á næstunni vikulega.

Krakkar! hlökkum til að hitta ykkur í janúar

 
05:04 PM (UTC -4)
 
Söngnámskeið í október.
Tuesday, Oct 10, 2006

Nú höfum við verið með söngnámskeið það sem af er október og klárum það þann 19. n.k.  8 nýjir söngvarar hafa bæst í hópinn, allt efnilegir krakkar og hlökkum við til að vinna með þeim.  Fyrst fórum við í íslensk lög, bæði sem þau völdu sjálf og eins það sem við völdum en í kvöld fá þau með sér disk heim til að æfa og syngja síðan þau lög á fimmtudaginn og þá er hægt að nota tímann fram að helginni til að útsetja fyrir hvern söngvara.  Helgin fer í að æfa hljómsveit sem skipa: Siggu Rún á bassa, Elvar á gítar, Brynjar Friðrki á gítar og Davíð Helga og Sigþór á trommum.

Æfingar í næstu viku, þriðjudag og fimmtudag fara síðan í að krakkarnir syngja lög með hljómsveit.  Í nóv. og des. munum við þjálfa hljómsveit áfram til að þau séu tilbúin í janúar þegar tónlistarsmiðjan fer aftur í gang með rokk þemað.

Söngvarar sem bættust við hópinn eru þessir.

Kristófer Þorláksson.  Agnes Grímsdóttir. Hjörvar Jónmundsson. Þorbjörg Eva Magnúsdóttir. Erna Sigríðu.  Þóra Kristín. Helena og Fjóla Steingerðardóttir.

 
06:26 AM (UTC -4)
 
Aukatónleikar búnir, söngnámskeið framundan.
Monday, Sep 25, 2006

Héldum aukatónleika sl. laugardagskvöld og voru um 70 manns sem sóttu þá tónleika. Þannig að á þessum þrennum tónleikum höfum við fengið um 300 gesti og þykir okkur það frábært.  Þökkum öllum sem komu og styrktu gott málefni og sáu þessa frábæru unglinga okkar

Eins erum við búin að vera að skemmta á festivali fyrir þroskahefta sem haldið var hér á Hótelinu og það var alveg frábært.  Þvílík snilld að skemmta þar og fólkið svo ánægð, dönsuðu og höfðu vonandi gaman af.

Núna 2.okt. munum við halda söngnámskeið fyrir krakka og eru þegar 10 búnir að skrá sig og munu 4 til viðbótar vera með, 14 krakkar á aldrinum 11-14 ára.  Þetta er liður í næsta þema okkar sem verður ROKK og mun byrja í Janúar á næsta ári.  Þjálfa krakkana í söng og framkomu svo þau verði betur undirbúin fyrir næsta þema og búin að kynnast ágætlega innbyrðis.  Hlakka ég til að vinna með þeim öllum.  Námskeiðið mun verða allan október mánuð og þá förum við í smá pásu

 
05:30 PM (UTC -4)
 
Aukatónleikar 23.september
Tuesday, Sep 5, 2006

Já, við munum halda aukatónleika þar sem við höfum heyrt að mikið af fólki hafi ekki komist á tónleikana um síðustu helgi, enda var húsið fullt í bæði skiptin.  23.september verða aukatónleikarnir og á sama stað og síðast, leikhúsinu.

Nýtt æfingarhúsnæði erum við komin með, uppá Höfða og eigum eftir að mála og gera flott.  Ætli við leyfum ekki krökkunum aðeins að koma þar nærri  Já, Tónlistarsmiðjan er komin til að vera, sýnist mér á öllu

 
07:03 AM (UTC -4)
 
Frábærir tvennir tónleikar:)
Saturday, Sep 2, 2006

Yfir 100 manns í gær á tónleikum og yfir 100 manns í dag á tónleikum, alveg meiriháttar stemming og krakkarnir FRÁBÆR  Slúttuðum svo hér heima í kvöld en váááá...hvað var erfitt að kveðja krakkana, ég ætlaði aldrei að geta hætt að knúsa þau   Á morgun ætlum við Elvar, Sigga, Þorbjörg, Davíð og Brynjar að taka leikhúsið í gegn, ryksuga og skúra og skila því vel af okkur og koma hljóðfærum og öðru dóti í nýja æfingarhúsið.   Laugardaginn 9.sept. erum við síðan með klukkutíma skemmtun á Festivali fyrir þroskahefta, þannig að hluti af okkur hittist þá aftur.  Við Elvar förum síðan að undirbúa næstu tónlistarsmiðju og mun ég búa til sér blogg fyrir þá smiðju síðar.  En að lokum, Í BILI

KRAKKAR!!!!  Þið eruð frábær, haldið áfram að vera þið sjálf og vonandi eigum við eftir að vinna oftar saman, enda ætla flestir að halda áfram, úff..sem betur fer

 
07:15 PM (UTC -4)
 
Nú er allt að gerast:)
Thursday, Aug 31, 2006

Jæja, fyrri tónleikarnir á morgun Vá, hvað ég hlakka til að sýna Húsvíkingum og öðrum þetta frábæra fólk sem við eigum.    Það er orðið uppselt á föstudagstónleikana en fullt af miðum til á laugardagssýninguna.  Tryggið ykkur miða...því ég get lofað ykkur því að þetta verður bara snilld.

Kiddi kom í gær með hljóðkerfið og Erling setti upp ljósin...verður mikið sound og þvílík ljósasýning.  Hljómsveit og söngvarar orðnir spenntir og mikil tilhlökkun í okkur öllum.  Klárum að æfa í kvöld, förum vel yfir rennslið, allan pakkann.   Við erum búin að koma núna tvisvar fram í útvarpi.  Gísli Sigurgeirsson var með okkur í viðtali, bæði fyrir útvarp og sjónvarp.  Hér getið þið hlustað á viðtal við okkur á svæðisútvarpinu.

http://dagskra.ruv.is/streaming/akureyri/?file=4290221 (aftarlega)

Svo var viðtal við mig hjá Margréti Blöndal um daginn í þættinum "Samfélagið í nærmynd" Það er hér: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/live/  (ca. fyrir miðju)

Held að Tónlistarsmiðjan komi á Stöð 1 í kvöld. Veit ekki betur.

Svo segi ég bara!  krakkar!!!  Skemmtum okkur vel bæði á föstudag og laugardag og ef við skemmtum okkur og brosum þá smitum við útfrá okkur til áhorfenda...og þeir munu skemmta sér.  Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af ykkur, þetta er komið hjá ykkur allt...bara að njóta og hafa gaman af

 
05:56 AM (UTC -4)
 
Þakkir til fyrirtækja í bænum.
Wednesday, Aug 23, 2006

Þetta er coperað af Skarpi..setti þessar línur þar líka

Nú fer að líða að aðaltónleikum Tónlistarsmiðjunnar og eru unglingarnir meira en lítið búnir að vera duglegir og áhugasamir.
Gaman að sjá miklar framfarir hjá þeim síðan í júní.
Við höfum verið að æfa núna í leikhúsinu, en þar einmitt verða tónleikarnir þann 1.og 2.sept. Dreifibréf fara í öll hús bæjarins, plaköt komin á víð og dreif og núna er verið að sýna á Húsavíkurstöðinni smá myndbönd frá æfingum. En við getum lofað ykkur góðum tónleikum með efnilegum unglingum
Fyrirtæki í bænum hafa verið okkur velviljaðir og styrkt okkur til að geta haldið þessu gangandi og mun ég birta hér listann á eftir.
Margir af unglingunum hafa aldrei komið fram og sungið opinberlega og er þetta stórsigur hjá þeim. Við hlökkum til tónleika og vonandi þið líka
Forsala aðgöngumiða er í síma: 8482140 og hægt að nálgast miðana að Urðargerði 3. (Anna Soffía)

Fyrirtæki sem hafa styrkt okkur eru þessi:

Kiwanis
GPG
Val
Höfðavélar
Gistiheimilið Árból
Hárgreiðslustofa Huldu
Garðvík
Langanes útgerð
Hvalasafnið
Alli Geira
Víkurraf
Skokki?
Norðursigling
EG Jónasson.
Lyfja
Toppurinn
Hvammur
Uppsalir
Hestaleigan Saltvík
Þingiðn:
Fatahreinsunin.
Múrbúðin/Tónninn
Veitingarhúsið Salka
Tannl.stofan
Öryggi
Sjóvá
Búbót
Price waterhouse cooper
Bílaleigan
Hljóðkerfa og ljósaleiga Akureyrar ehf

Flettingar í dag: 38
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 39
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 180948
Samtals gestir: 38336
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:33:43