Færslur: 2012 Janúar

27.01.2012 11:51

Fréttir og myndband

Jæja, best að láta ykkur hænsnavini mína vita aðeins af okkur hér:)... Hér gengur bara allt sinn vanagang. Hænur að detta í gírinn aftur með varp en fóru að mínu mati í allt of langt frí. Veit ekki hvað olli því nema þá kannski þessar veðurbreytingar. Fóður hefur allavega verið eins og áður og ég mokað í þær grænmeti í vetur ásamt öllu hinu eins og varpfóðri, köggluðu byggi, kjötsagi og því sem fellur til hér af heimilinu þannig að ekki ætti það að vera útaf næringarskorti að einhverju tagi. En þær líta vel út og eru sprækar:).... Er farin að huga að því að setja í vél og eiga tilbúna unga fyrir vorið. Er farin að hlakka til að stússast í því. Alltaf jafn gaman að sjá ungana skríða úr eggi og koma þeim upp. Eins er ég ánægð með að góður kunningi minn hér í bæ bað um að fá úrganginn úr hænsnakofanum næst þegar ég hreinsa undan þeim sem verður fljótlega. Hann er með safnkassa og ætlar sér að sturta í hann því sem ég tek af gólfinu og þar er hálmur og skítur saman kominn:)  Og við vitum auðvitað að hænsnaskíturinn er hinn besti áburður á beðin okkar í vor. Þannig að ef einhver hér á Húsavík er að lesa þetta og hefur safnkassa og vill fá úrgang héðan úr kofanum, þá er bara að hafa samband. Ég tel að hálmurinn sé fljótur að rotna án þess að ég viti það. Kannski getur einhver sagt mér það? Eins hef ég nú bara sótt mér nýjan skít út í kofa og blandað hann í vatni og sett hér á inniblómin og vökvað vel á eftir til að taka sýruna niður og árangur er mjög góður. Til hvers að vera að kaupa blómaáburð út í búð þegar maður þarf að taka nokkur skref til að ná í hann hér í kofann:)  Jæja, best að láta þetta duga í bili en hér er myndband af hænsnunum, myndband sem ég tók í gær:   http://youtu.be/zqHGWGqYFz8 

  • 1
Flettingar í dag: 38
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 39
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 180948
Samtals gestir: 38336
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:33:43