17.09.2008 14:45
já eða nei...
Nú eru vinirnir margir komnir á krossara og hann á pening til að kaupa sér slíkt hjól og langar alveg óskaplega og er búinn að tala um þetta leeeeeeengi...hópurinn er að hittast, spjalla um hjólin, viðgerðir á þeim og allt sem að þeim snýr...en minn stendur þarna í hópnum og ekkert hjól....Það sem er að setja mig aðeins útaf laginu núna er það að hann þurfti snögglega að hætta í fótbolta eftir 8 ára standslausar æfingar...því að hann greindist með beinaukningu í fótum og þarf því algera hvíld frá boltanum...þar sem þetta var af honum tekið, þá dettur hann aðeins úr hópnum og vantar eitthvað...
Ég held ég verði áfram að klóra mér í hausnum bara og segja við hann: "Sjáum til" mjög svo leiðinlegt svar...en ég VERÐ að sjá til...en hætturnar eru auðvitað allstaðar..
hvað með krakka sem eru í hestamennsku, hrynjandi af baki og fá spörk og annað.
Fótbolti er nú ekki hættulaus hef ég séð, né aðrar íþróttagreinar.
Venjuleg hjól ekki hættulaus heldur.
Bretti og skíði, algerlega hættulegt líka
Vá...gæti talið helling upp...lífið er bara stórhættulegt...hehehehe
Kostur við þetta krossaradæmi er að þeir eru vel brynjaðir, með góða hjálma og ég veit að allavega hér fylgjast foreldrar vel með þessu sporti og eru margir hverjir með í þessu.
Þið sjáið að ég er að reyna að sannfæra mig um að segja JÁ, því auðvitað langar mig að segja já við þessu.....(hefði lúmskt gaman af þessu sjálf)
Minni á fordómabloggið gott fólk, vil fleiri comment takk
15.09.2008 20:49
Stelpuparty.
Allt 8 ára
dömur og fannst mér svo yndislegt að sjá hversu góð þessi börn öll voru,
kurteis og yndisleg.
Diskurinn með
hljómsveitinni ABBA var eingöngu í tækinu, dansað, sungið og sprellað og
þvílíkt fjör.
Ég tók
myndband og setti smá brot (í tveimur hlutum) á myndbandalinkinn.
Annað í
fréttum: Fer suður n.k. föstudag til elskunnar minnar
og hlakka ég mikið til að
hitta hana, enda ekki séð hana í 10 daga...össss....ekkert auðvelt að vera í
fjarbúð....
Kannski að
maður kíkki á eitthvað skemmtilegt fólk, hver veit....
Heyrumst í
næsta bloggi....
13.09.2008 14:57
Haustkvef með tilheyrandi fjöri...urrrr
Þá er það
haustkvefið og allt það skemmtilega sem því nú fylgir.
Innihald í
pakka þessum er eftirfarandi (svona fyrir þá sem vita ekki hvað þetta er)
Rennandi vökvi
úr nösum og augun, slappleiki, hausverkur, hiti, kuldi og jafnvel minnisleysi
því ég man ekki eftir fleiri atriðum.
Held ég sé að
fara með börnin hér af hita í húsinu, allir ofnar komnir í botn og dugar ekki
til.
Því ég er
kapplædd rétt eins og ég sé að fara að ganga á Norðurpólinn....
Og ekki er
kasmírullarpeysan hennar Hildar minnar að virka núna..flíspeysan þurfti að fara
yfir og ullarsokkar á lappirnar...isss....ég færi örugglega í fötum í
gufubað...virkar ekkert núna.
Búin að sjóða engiferrót og þræla safanum í mig ásamt grænu tei sem er með Aloe Vera í, á það ekki að svínvirka þetta
Aloe vera...hehhee...júbb og hunang þurfti að fara í gumsið því annars er þetta
algerlega ódrekkandi..þá bið ég nú frekar um KAFFI takk...
Svo skipaði
hann Kalli vinur minn mér að dæla í mig Spirulina töflum sem ég var svo heppin
að eiga uppí skáp..hann sagði sko 6 töflur...Nei, kalli minn, þori ekki að taka
nema 2 núna annars verð ég með þvílíka orku að ég myndi ganga á
fjöll...hehehehe
Verð góð og
gegni þér og tek KANNSKI 2 til viðbótar í kvöld.
Eins gott að
þetta gangi fljótt yfir, afmæli dótturinnar n.k. mánudag og ég VERÐ að baka á
morgun með henni. Og já elsku Hildur
mín, ég verð orðin góð næsta föstudag...LOFA....
Ef þið eigið
töfralausnir fyrir kvef og þetta ógeð, þá megið þið henda þeim ráðum hér í
comment takk.
Ég er farin að
sötra á þessu gumsi mínu.....ojjjjjjjjjjjjjjjjj
10.09.2008 20:53
Sumt fólk sko...urrrr
Já, til er mikið af VONDU fólki...talað er um að ferfætlingar og önnur dýr
séu ill og grimm mörg hver..en svei mér þá, mannskepnan er sjálfsagt grimmasta
dýrið á jörðunni.
Þegar við Hildur vorum á leið Norður sl. föstudag, þá sá ég 2 menn á
hestum...væri ekkert nema fallegt við það ef ekki væri fyrir það sem maður
sá...helv...karlinn (afsakið orðbragðið) var með písk og lamdi hestinn sundur og
saman...arggggggggg....hann var semsagt ekki maður sem kunni né kann að nota
pískinn, hann barði hestinn aðallega í hausinn, allavega það sem ég sá og
hesturinn hentist allur til.
Mig langaði mest til að stoppa og fara og berja þennan mannfjanda.
Já, ég get sko orðið reið þegar ég sé svona...er bara ekki að fatta svona
fólk.
Ef ekki er hægt að bera virðingu fyrir dýrum og öðrum í kring um sig, þá
ber maður varla virðingu fyrir sjálfum sér, eða hvað????
Hvað finnst ykkur??????
03.09.2008 16:37
Fjarbúð já....

hef nú ekkert á móti borginni...eeeen myndi ekki vilja hér búa, vil frekar búa útá landi og held ég að fólk hér sé ekki alveg að fatta hvað það missir af, náttúran í öllu sínu veldi og það rétt við húsið hjá manni, friðurinn, ekkert stress, börnin frjáls, stutt í allt og svo mætti lengi telja.....hér í borginni skreppur maður ekkert...vááááá....tekur eilífð að fara útí búð að versla
Menning munu núna margir segja að hér sé...en hvað er menning????
Og allir verða að velja og hafna og búa þar sem því líður best...er bara nett pirruð stundum á þeim sem eru borgarbörn í húð og hár og talar niður til landsbyggðarinnar...

10.08.2008 12:28
Gaggala gaggala gú.......
Já,
hænur...furðulega skemmtilegt fiðurfé
Eins og margir
vita þá erum við stöllur hér og krakkarnir með 5 hænur sem gefa okkur egg á
hverjum degi og mun skemmtilegra að borða
egg undan sínum eigin hænum......allavega þarf á þessum bæ ekki að kaupa
egg í búðinni...eeeeen það skemmtilega við þetta allt er það að ég er oft
spurð um hvort ekki þurfi hana til að hænurnar verpi......og svarið er
hér: NEI...það þarf EKKI hana nema að
maður ætli sér að fá frjóvguð egg og unga þá í framhaldi af því....en þetta
vita bara ekki allir sko
Ágætt mál, þvi
ekki ætla ég að láta hanann vekja hér alla í hverfinu eldsnemma á
morgnana...erum að hugsa bara um að fá okkur VINDHANA ofaná skúrinn, þá
allavega erum við með hana....og hana nú
Endilega haldið áfram að commenta á greinina hér fyrir neðan: "FORDÓMAR"
01.07.2008 19:15
FORDÓMAR?????
Alltaf í lífinu rekst maður á fordóma.
Allskyns fordómar og ætla ég aðeins að blása úr mér hér á prenti þeim fordómum sem ENN ERU við líði gagnvart samkynhneigðum.
Ég veit að þeir fordómar hafa lagast mikið, HÚRRA fyrir því..... en ennþá er til fólk sem getur ekki horfst í augu við homma og lesbíur....hvað skyldi það vera? Hmmm....kannski af því að hið heilaga rit, Biblían segir að kona og karlmaður skuli vera saman? En segir Biblían alltaf satt???? Eða er fólk ekki að meðtaka að það er EKKI það réttasta að kona og karl deili lífinu saman, heldur að ástfangið fólk deili því saman? Eða er eitthvað betra að karl eða kona píni sig með hinu kyninu af því að"Normið" segir það....?? Hver segir að svokallað" norm" sé RÉTT??????? Og hvað er þetta" Norm" sem talað er um???
Margir tala um að normalt sé að karl og kona séu saman, eignist börn og búi til heimili....Þetta er bara hið besta mál svo framarlega sem fólk er gagnkynhneigt..en það eru bara ekki allir þannig.
Normalt í mínum huga er þetta: TVEIR EINSTAKLINGAR SEM ELSKA HVORN ANNAN, hvort sem það eru karl og karl, kona og kona eða karl og kona....
Oft heyrir maður að það sé eðlilegast fyrir börn að alast upp hjá móður og föður...Ég get ekki verið sammála þessu, ég tel að best sé fyrir börn að alast upp hjá ánægðum
foreldrum, ástföngnum foreldrum hvort sem þau alast upp hjá 2 konum, 2 karlmönnum eða hjá karli og konu.
Þannig hljóta börnunum að líða best...Það gefur hreinlega auga leið, annars er fólk blint ef það ekki sér það.
Ánægðir uppalendur = ánægð börn.
Sem betur fer er kirkjan loks búin að opna dyr sínar fyrir samkynhneigðum og set ég hér orð sem birtust á síðu samtakanna 78.
(Ritað 13.júní 2008)
Form um staðfesta samvist var kynnt á prestastefnu sem lauk í Seljakirkju í gær. Biskup Íslands lagði formið fram og hvatti presta sem staðfesta samvista til að nota þetta form þegar þeir fá til þess heimild með lagabreytingu sem tekur gildi þann 27. júní næstkomandi.
Með samþykkt þess verður Þjóðkirkjan fyrsta þjóðkirkja í heimi sem getur lagalega gefið saman samkynhneigð pör. Innan kirkjunnar var lögð áhersla á að ekki þyrfti að bíða eftir því að form eða ritúal væri til fyrir þessa athöfn þegar lögin tækju gildi.
Þetta nýja form er byggt á þremur þáttum: Í fyrsta lagi á formi um blessun staðfestar samvistar, sem lagt var fram sem drög fyrir tveimur árum og þegar hefur hlotið umræðu innan kirkjunnar. Í öðru lagi byggir lögformlegur þáttur þess á formi sýslumanna við staðfestingu samvistar. Í þriðja lagi byggir það á hjónavígsluformi kirkjunnar. ( Tekið af síðu samtakanna 78)
Húrra fyrir þessu segi ég bara....
Margir halda að það sé einhver lífstíll að vera samkynhneigður....voðaleg fáviska er það nú...
Annað hvort er fólk gagnkynhneigt eða samkynhneigt... Svo einfalt er það nú. Þetta er ekki eitthvað sem fólk velur sér.
Hvað er svosem að því að laðast að sama kyni?????.......Ég spyr nú bara..hmmmm
Hér er ein setning sem ég hata: " Hræðilegt að vita til að fólk af sama kyni séu saman, sé ástfangið og deili sama rúmi"
Hmmm.....en hvað með samkynhneigða??.....Finnst þeim ekki hræðilegt til þess að hugsa að fólk af sitthvoru kyni séu saman, ástfangið og deili sama rúminu???....en samkynhneigðir er bara ekkert að tala um það, það virðir bara ástfangið fólk.....Margir sem munu lesa þetta verða mér mjög ósammála og er það gott og gilt...allir mega hafa sínar skoðanir....
Þið sem viljið commenta á þetta...endilega komið þá með rök ef þið eruð á móti mínum skrifum hér....verður gaman að lesa
Samtökin 78!!! Til hamingju með 30 ára afmælið...mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíma og mikið áunnist í réttindum samkynhneigðra. Þökk sé þeim sem þorðu að vera þeir sjálfir.
11.06.2008 18:20
Hvað er ást?
Núna þessa vikurnar hef ég velt orðinu ást fyrir mér...hmmm..þetta litla 3ja stafa orð sem felur samt svo mikið í sér...
Hvað er ást?
Hvernig birtist hún?
Hvað er að vera ástfangin?
Fullt af spurningum í kring um þetta litla orð.
Ég lít svo á að ást til barna okkar sé þessi fullkomna ást, þ.e ástin sem er órjúfanleg, ekkert hægt að komast þar á milli.
Börnin okkar elskum við alltaf hversu gömul þau verða og hvað sem á gengur.
Auðvitað geta þau skapraunað manni, en við elskum þau alltaf og getum alltaf fyrirgefið og það eru þau sem við berum svo mikla ábyrgð á og viljum ala upp til manns og gera þau að góðum og sterkum einstaklingum...í því er mikil ást og allt lagt undir. Já, það er ást og hin fullkomna ást.
Við elskum líka fleiri...við elskum makann okkar, foreldra okkar, systkyni og jafnvel fleiri...en ég persónulega get ekki sagt að ég elski vini eða ættingja..ekki þannig ást...frekar að mér þyki MJÖG vænt um fólkið.
Ég ELSKA börnin mín, foreldra og þann maka sem ég mun vonandi eignast
Að elska maka! Það getur verið á svo margan hátt í minni hugsun....virðing, vinátta, að laðast að, finna styrk, finna hlýju, finnast gott að vera nálægt makanum, vilja að makanum líði vel, eiga áhugamál saman, geta gefið af sér til makans og þyggja líka á móti og svo mætti lengi telja. Yndislegt að vera ástfangin og yndislegt að mega gefa af sér alla þá hlýju sem maður á og fá endurgoldið á móti. Þegar maður elskar makann sinn verður maður að rækta sambandið, hlúa að því. Auðvitað kemur alltaf eitthvað uppá þegar tveir ólíkir einstaklingar hefja samband saman, árekstrar geta orðið þá er bara algerlega nauðsynlegt að geta rætt út um hlutina, geyma þá ekki í sálinni, heldur ræða saman og virða skoðanir hvors annars.
Ástin er ekkert sjálfgefin að mínu mati, hana þarf að rækta. Og svo með tímanum verður hún öðruvísi, verður dýpri og meiri virðing og væntunþykja kemur inní sambandið. Þetta er mín skoðun, einhver án efa ósammála mér og lítur öðruvísi á þetta allt...en öll höfum við okkar skoðun og er það vel
Væri nú gaman að sjá COMMENT frá ykkur gott fólk

05.06.2008 11:13
Perlan Botnsvatn.
Já, loks lét ég verða að því að fara upp að vatni...en það eru liðin 9 ár síðan ég fór þar síðast. Ástæða þess er sú að þangað fór ég mína síðustu ferð með Pétri Davíð sem þá var orðin mikið veikur aftur af krabbarmeininu...við lágum í mosanum og horfðum uppí himininn...Hann spurði mikið hvað væri á himninum, hvað væri í skýjunum og við hlustuðum saman á fuglasönginn og áttum yndislega stund saman við vatnið....þannig að ég tók þá ákvörðun að ég færi ALDREI aftur að vatninu..vildi eiga síðustu ferðina með honum þangað...en ég veit að Pétur Davíð hefði viljað að ég myndi njóta fegurðinnar sem er upp við Botnsvatn...þannig að í gær braut ég múrinn og fór þangað með Hildi....erfitt...margar minningar komu upp...en ég var sátt eftir á og það skiptir miklu...
Á morgun ætlum við Hildur að renna okkur austur og vera yfir helgina...hlakka til að sjá fallegan stað sem Neskaupstaður er og vonandi mun veðrið leika við okkur þar.
Heyrumst í næsta bloggi....

26.05.2008 10:28
Nú fer Reykjarvíkurdvöl að ljúka í bili
20.05.2008 15:55
og enn er ég í Reykjavík
14.05.2008 10:08
Nýjar myndir og nýtt myndband!
Nú ætla ég að leggja land undir fót og fara í borgina á morgun og vera þar til 23.mai og mun án efa vera yndislegur tími

06.05.2008 16:41
og það held ég nú:)
Jæja gott fólk...nú er sko sumarið að detta inn. Yndislegur dagur í gær, sólríkur og fallegur og maður skellti sér í stuttbuxurnar og út í vorverkin...er að dunda við að olíubera útihurð og pallinn, raka lóð og hreinsa , svona sem allir eða flestir gera á vorin.
En vinkonur mínar BÝFLUGURNAR
eru komnar líka á kreik og ég er ekkert par hrifin...eins mikill dýravinur og ég er þá er ég hreinlega skíthrædd við þessi kvikindi...held að þetta séu EKKI flugur, einhver misskilningur þar á ferð í dýrafræðinni...tel þetta frekar smávaxna fugla sem svífa um loftin og vilja alveg ólmir komast inn til manns rétt til þess að suða og berjast í rúðurnar..ég hreinlega rýk til af hræðslu og reyni að koma þessum fuglum þarna undir glas og bíð svo bara eftir að einhver komi til að losa mig við þessa ÓVÆRU....já, þær eru sko ekki velkomnar á mitt heimili..urrrrr ....þannig að það er alveg hægt að sleppa því að telja mér trú um að þetta séu flugur
En sumarið leggst flott í mig bara, ég happy með meiru og börnin ánægð og kát og hvað er þá hægt að biðja svosem um meira..hmmmm.....jú..jú...sjálfsagt hægt að biðja um meira og vilja meira...en á meðan maður er ánægður með sitt og sína þá er þetta fullkomið....
Njótið sólardaga, njótið þess að vera til og njótið lífsins...það er nefnilega assgoti stutt þetta líf.
Heyrumst í næsta bloggi...og það má alveg commenta og skrifa í gestabók
28.04.2008 18:04
Hvað er í gangi með veðrið!!!!
eða að dagatalið sé rangt...best að láta athuga það eða hreinlega mig sjálfa....án gríns þá er ég gáttuð á þessum veðurbreytingum...ekki nema von að fólk leggist í flensu ótt og títt bara...krakkarnir ýmist á bolnum úti eða í SNJÓGALLA ...oj..ojEeeeen........sumarið fer að detta inn...veturinn er bara að klára sig af held ég og ég býst við æðislegu sumri með sól bæði úti og í hjartanu
Hendið kuldagöllum uppí skáp og upp með stuttbuxurnar..þá kemur þetta....GLEÐILEGT SUMAR..
23.04.2008 08:58
Og sumarið að koma....
Held að veðurguðirnir gegni mér nú í þetta sinn sko. Að vísu var hér ekkert svakalegur vetur, allavega ekki snjóþungur sem BETUR FER...þoli ekki snjó nefnilega en samt bý ég fyrir Norðan..hmm...skrýtið
Það er bara svo gott að búa hér að ég vil ekki skipta...Held ég haldi mig hér á Norðurlandinu sem mest í sumar, skrepp kannski eitthvað í borgina til að fá smá rigningu þá ef ég skyldi verða leið á allri sólinni hér...
Nei..segi svona....ætli við fáum ekki einhverjar dembur hér af rigningu...það er orðið svo skrýtið þetta veður að maður er hættur að fatta hvort það er vetur, sumar, vor eða haust. Veðrið er furðulegt fyrirbæri og oft fær maður sýnishorn af nokkrum tegundum af veðri yfir daginn...en svona er Ísland bara...
En allavega elskurnar mínar! Takk fyrir veturinn og ég hlakka til að eyða sumri og vonandi sól með vinum og ástvinum

