22.06.2007 11:57

Grein í bæjarblaðinu Skarpi.

TÓNLISTARSMIÐJAN.

Undir formerkjum samtakanna Líf án áfengis.

Hvað lærum við þeir fullorðnu af unglingunum okkar?

Ég undirrituð hef verið að starfa með unglingum frá 11-17 ára í rúmt ár við tónlist og söng ásamt Elvari Bragasyni. Mig langar að fjalla aðeins um starfsemi þessa og um leið að þakka þeim sem hafa sýnt áhuga á starfi okkar.

Svona starf, þ.e. að halda úti Tónlistarsmiðju er að ég held það eina sinnar tegundar hér á Íslandi í þessu formi. Við unnum þetta algerlega án launa og unglingarnir borguðu ekkert hvorki á námskeiðin eða í smiðjuna sjálfa. Held að það finnist ekki víða að fullorðið fólk vilji starfa án þess að fá laun fyrir, því að þetta er mikil vinna, skipulagning og tekur mikinn tíma. En launin sem maður fær eru brosandi andlit, góður árangur og frábærir krakkar sem gefa manni mikið. Það eru alger forréttindi að fá að vinna með börnum og unglingum, þau gefa manni hluti frá hjarta sínu sem fullorðnir eru búnir að týna jafnvel.

Þess vegna segi ég alltaf: Geymum aðeins barnið í okkur sjálfum.

Ef að ég stikla á stóru þá byrjuðum við vorið 2006 og ákváðum að vera með Bubbaþema fyrst að kóngurinn sjálfur var fimmtugur það ár. Unglingarnir voru ekki alveg að fíla þessa tegund tónlistar, ekki öll allavega...en með tímanum kom áhuginn og viljinn að læra og hafa gaman af. Á því tímabili fórum við víða með dagskrá, má þar nefna t.d Vestmannsvatn, Mærudagar, leikur hjá Völsungi og svo 2 stórtónleikar í leikhúsinu og var yfirfullt á báðum sýningum og urðum við að halda aukatónleika.

Allt þetta tókst vel, unglingarnir til fyrirmyndar og gerðu hlutina eins og sannir listamenn.

Oft á æfingum er auðvitað glatt á hjalla og maður nær ekki alveg til eyrna þeirra ef einhverju þarf að koma vel til skila, en þá er bara að hækka róminn aðeins og þau hlusta og fara eftir.

Nú í janúar byrjuðum við síðan með þema númer 2 og ákveðið var að leyfa unglingunum að vera með í lagavali og var Rokkið valið. Þau höfðu mikið til málanna að leggja, sumt betra en annað eins og gengur og gerist en við reyndum af fremsta megni að koma á móts við þau í lagavali og gerðum það.

Æfingar gengu vel, sumir fengu fleiri lög en aðrir og vil ég árétta það hér með að það fer ekki eftir getu hvers og eins, heldur meira eftir tíma og áhuga og eins hvort að viðkomandi var í stakk búinn til að syngja einn. Sumir vildu ólmir fá fleiri lög á meðan aðrir vildu færri og syngja sóló eða dúett. Við erum ekki öll eins, sumir feimnari en aðrir og það ber að virða. Og í svona starfi er ekki bara verið að kenna söng og hljóðfæraleik, heldur kemur þarna inní líka að krakkarnir eflast félagslega, læra að koma fram fyrir fjölda áhorfenda, styrkjast í hópvinnu og fleira og fleira.

Á þessum tíma var farið á Kópasker og spilað á 1.mai hátíðinni og núna 8 og 9unda júní sl. voru haldnir tónleikar í leikhúsinu. Og að sjálfsögðu fóru unglingar á kostum og gerðu hlutina frábærlega bæði söngvarar og hljómsveit.

Hér er bara stiklað á stóru í sambandi við vinnuna hjá Tónlistarsmiðjunni en það sem mér finnst standa uppúr í þessu öllu eru frábærir unglingar, vinnusemi þeirra og elja til að standa sig sem best í öllu sem þau gera. Við fullorðna fólkið getum stundum tekið þau til fyrirmyndar og hugsað um hvað við eigum yndislegt ungt fólk sem á framtíð fyrir sér og er meira hugsandi en margur heldur. Mikið er talað um unglingavandamál, en svei mér þá, ég hef ekki hugmynd um hvað það þýðir, heldur veit ég um fullt af foreldravandamálum.

Unglingavandamál?... Hvað er það, segi ég bara.

Fyrirtæki bæjarins hafa stutt okkur vel og styrkt okkur með fjármagn og höfum við fengið að vera í æfingarhúsnæði uppá Höfða án þess að greiða fyrir. En í staðinn tókum við það hús og máluðum og þrifum og voru krakkarnir okkar með í því.

Enga aðra styrki höfum við fengið og höfum við því verið að selja t.d dagatöl og dvd diska með efni Bubbatónleikana, segul frá Líf án áfengis svo eitthvað sé nefnt og fóru meðlimir smiðjunnar á hlaup á milli húsa til að selja með okkur.

Eins voru haldnir styrktartónleikar til að fá inn einhvern pening. Og ber að þakka því góða fólki sem hjálpaði okkur þar.

Það er dýrt að halda úti starfsemi sem þessari og oft á tíðum höfum við Elvar þurft að taka úr okkar eigin vösum til að láta þetta ganga. En eins og ég hef sagt áður og segi enn: Launin okkar eru þessir yndislegu krakkar og brosandi andlit og faðmlög.

Það eru laun sem geymast í hjartanu og ekki hægt að eyða.

Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem hafa stutt okkur í orði og verki, foreldrum unglinganna, fyrirtækjum í bænum sem styrktu okkur og þó mest þakka ég ykkur krakkar fyrir að vera til og hafa svona gaman af því að starfa í tónlist með okkur.

Það var yndislegt að fá að kynnast ykkur og starfa með ykkur.

Og munið: Haldið áfram að við þið sjálf, því að þið eru langflottustJ

Eins þakka ég gestasöngvurum sem komu að tónleikum með okkur, Kidda Halldórs sem var alltaf viljugur að hjálpa okkur með hljóðið og Erling fyrir að hoppa alltaf til þegar þurfti að vera með ljósin og Guðna Bragasyni fyrir hjálpina með kynningu fyrir tónleika og þakkir fær Gunna Stína fyrir að leyfa okkur alltaf að fara í leikhúsið bæði með æfingar og tónleikahald.

Húsavík á bjarta framtíð með tónlistarfólk og þar ýtir Tónlistarskóli Húsavíkur verulega undir. Vonandi var Tónlistarsmiðjan smá auka þar ofaná.

Tónlistarsmiðjunni er lokið allavega í bili þar sem aðstæður eru breyttar hjá vini mínum Elvari. En við ætlum að enda þetta með stæl og út verður gefinn diskur og inniheldur sá diskur lög og texta eftir Elvar Bragason og munu krakkar úr Tónlistarsmiðjunni syngja og leika. Útgáfutónleikar verða í framhaldi af þessu verkefni.

Elvari þakka ég sérstaklega fyrir hnökralaust og skemmtilegt samstarf .

Við tvö eigum örugglega eftir að vinna meira í framtíðinni að tónlist í hvaða formi hún verður kemur í ljós síðar.

Með kveðju. Anna Soffía Halldórsdóttir.

10.06.2007 09:56

Tónlistarsmiðjunni lokið.

Jæja, þá er Tónlistarsmiðjunni lokið og enduðum við með tvennum flottum tónleikum um helgina.  Krakkarnir stóðu sig að sjálfsögðu frábærlega, enda ekki við öðru að búast.
Við viljum þakka ykkur og foreldrum ykkar fyrir frábært samstarf og eins öllum þeim sem komu að þessu með okkur, eins og t.d gestasöngvurunum Hafliða og Unnsteini, ljósamönnum Erlingi og Agnari og hljóðmönnum Kidda Halldórs og Tandra Gaukssyni.
Fyrri tónleikar voru teknir upp af Víði Péturssyni og munuð þið fá disk þegar búið verður að græja hann.


Krakkar munið!  Haldið áfram að vera þið sjálf því þið eruð langflottust
Ég er farin að sakna ykkar bara strax.

04.06.2007 12:21

Styttist í tónleika...yesss

Jæja..krakkar..æfingar næstu daga á sama tíma..18-20 og allir að mæta því að nú styttist í tónleika..aðeins 4 æfingar eftir og nú förum við að fara í rennsli á þessu og fara eftir prógramminu.
Ljósabúnaður kemur í vikunni og á fimmtudag væntanlega verður hljóðmaður kominn með sínar græjur...og við tökum hljóðpróf á ykkur.

Forsala aðgöngumiða er í... síma: 8482140...fljótt að seljast upp ef þetta verður eins og í fyrra..færri komust að en vildu..

Ég er rosalega ánægð með ykkur krakkar og muna bara: Hafa gaman af þessu, skemmta ykkur um helgina og öðrum í leiðinni...rokka feitt

Tek eitthvað video í kvöld af ykkur...hehehehe...

30.05.2007 20:36

Í fjöruferð að taka myndir

Létt æfing í kvöld, því að við fórum í fjöruna til að taka myndir fyrir auglýsingarplakatið sem fer um allan bæ í næstu viku.
Það gékk fínt að taka myndir af þessum snillingum og svo fengu þau kast og óðu nokkur útí sjóinn, þó aðallega Elín, Brynjar, Kristófer og Margrét Sif.
Vonandi urðu foreldrar ekki ósátt við okkur...úfff...þau voru á floti og það þurfti að koma þeim sem fyrst heim til að þau kæmust í heita sturtu og þurr föt.  En þeim fannst þetta gaman og okkur Elvari svosem líka að sjá þau þarna svamla í góðu veðir en í ísköldum sjónum...úfffffff.....En ég held ég þurfi að þrífa bílinn hjá mér á morgun, þau tóku  slatta af fjörusandi með sér í bílinn En það er nú í lagi sko.

Myndir eru komnar  í myndaalbúmið fyrir Rokkhópinn...kíkkið á ykkur þar

Æfing á morgun klukkan 6....Allir að mæta og gestasöngvarinn Hafliði mun mæta líka og taka með okkur lagið....ekki slæmt það. 



25.05.2007 14:16

Ný myndbönd.

Frábær æfing í gær hjá ykkur krakkar og þið eruð alltaf að verða betri og betri með hverri æfingu...eeeeen...nú þurfum við bara að fara að huga að hreyfingum á sviðinu

Kíkkið á myndböndin á myndbandalinknum.....sem ég tók af ykkur í gær.

Hljómsveitin okkar er alveg mögnuð..Þau geta farið á milli hljóðfæra eins og ekkert sé...Sigga fer af bassa yfir á fiðlu, Brynjar Friðrik fer af gítar og á trommur og Davíð Helgi fer af trommum yfir á hljómborð...svona eiga góðar hljómsveitir að vera

Vorum með Pizzuveislu í gær handa öllum.
 
Í næstu viku verða æfingar á: Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag á sama tíma.  Frá klukkan 18-20.

21.05.2007 18:16

Æfingar að byrja í leikhúsinu!!!!

Jæja, krakkar..þá byrja æfingar í leikhúsinu Á MORGUN kl. 18.
Allir að mæta...

Nú förum við að hafa fleiri æfingar í viku og bráðlega ætlum við að hafa Pizzu veislu handa okkur eftir æfingu...borða saman og hafa það skemmtilegt.

En muna: ALLIR AÐ MÆTA Á ÆFINGAR

13.05.2007 14:39

4 gömul myndbönd.

Skellti inn 4 gömlum myndböndum á myndbandalinkinn...og varð að setja meistara Hafliða þar sem hann þenur raddböndin, flottur karlinn 

Það er alveg spurning núna hjá okkur Elvari að fara að fjölga æfingum fram að tónleikum, kemur í ljós núna bráðlega og látum við ykkur vita líka þegar við flytjum okkur í leikhúsið sem verður fljótlega.

12.05.2007 08:16

Spilað á Kópaskeri.

Í gær, föstudagskvöld fóru krakkarnir ásamt Elvari og nokkrum foreldrum á Kópasker til að spila og syngja. Ég ÞVÍ MIÐUR komst ekki með vegna veikinda.  En það gékk vel hjá þeim, enda ekki við öðru að búast hjá svona flottum krökkum

Krakkar! Hlakka til að hitta ykkur næsta þriðjudag á æfingu..farin að sakna ykkar bara

01.05.2007 17:30

1.mai hátíðin. Ný myndbönd.

Agnes, Margrét Sif, Þóra Kristín, Hafrún og Elín stóðu sig flott í dag ásamt hljómsveit Tónlistarsmiðjunnar á 1.mai hátíð sem haldin var í íþróttahúsinu.
4 lög voru tekin og eru komin ný myndbönd inná síðuna....

Ekki samt alveg laust við að smááááá......stress væri í gangi sem er bara eðlilegt og verður farið af ykkur þegar stóru tónleikarnir verða

28.04.2007 08:58

1.mai hátíðin í íþróttahöllinni.

N.k. þriðjudag 1.mai mun Tónlistarsmiðjan vera í íþróttahöllinni með 4 lög.
Þetta verða þau:

 

Agnes Gríms og Margrét Sif með lagið  "Hvar sem ég fer"

 

Hafrún Kolbeinsd. með lagið  "Yellow"

 

Elín Jósepsd. með lagið  "Ekkert breytir því"

 

Þóra Kristín með lagið  "Hlustað á regnið"

Núna fljótlega í mai förum við að færa allt okkar dót úr æfingarhúsnæðinu og niður í leikhús þar sem við munum æfa þar við góðar aðstæður og tónleikar síðan í júní.
Rokktónleikar með látum og gamani

ATHUGA: Þeir sem heimsækja þessa síðu! Endilega að kvitta í gestabók..Takk..

15.04.2007 19:30

Tónlistarsmiðjan með lag í Stundinni okkar!

Kíkkið á myndbandalinkinn.  Nýtt myndband, efnið sem var í Stundinni okkar í dag.  Tæknin var aðeins að stríða mér í sambandi við hljóðið, en þeir sem misstu af þá verður þetta endurtekið n.k fimmtudag. 

20.03.2007 21:12

3 ný myndbönd frá æfingu í kvöld.

Jæja, þá fékk ég að smella smá video á krakkana á æfingu áðan og mun koma með vélina aftur næst...já, passið ykkur bara

Nú eiga ALLIR söngvarar að mæta á báðar æfingar, þ.e.a.s á þriðjudögum og fimmtudögum....þeir sem geta komið klukkan 18 koma þá, hinir fyrir klukkan 19 eða rúmlega..  Gengur fínt, allir eru að bæta sig mikið og verður þetta meiriháttar flott þegar að tónleikum kemur...

18.03.2007 20:48

Nú fara æfingar að herðast.

Byrja að láta vita að nýjar myndir eru komnar í myndaalbúmið og nú fer maður að taka video af ykkur krakkar mínir 
Allt gengur fínt, prógrammið að verða tilbúið og verið að negla niður dagsetningu á ROKKTÓNLEIKA...nú er bara að spíta í lófana krakkar, því að þið eruð að fara að ROKKA...ó, já

Ég býst við að næsta sunnudag muni atriðið frá Tónlistarsmiðjunni koma í Stundinni okkar...horfa krakkar mínir á barnatímann

27.02.2007 20:00

Upptaka fyrir Stundina Okkar.

Vorum allan seinnipartin í skólanum. það var verið að taka upp 1 lag frá Tónlistarsmiðjunni fyrir "Stundina okkar" .  Það var lagið "Hvar sem ég fer" og var það Þorbjörg Eva sem söng.
Sigga á bassa, Brynjar Friðrik á gítar, Davíð á trommur og Elvar á rafgítar. Krakkarnir stóðu sig frábærlega eins og við mátti búast..og er að detta hér inn 2 myndbönd á myndbandalinkinn, bæði þar sem að Brynjar og Þorbjörg eru að hita aðeins upp hér heima og svo myndband úr skólanum.
Allskonar tökur voru teknar, yfir hópinn og líka nærmyndir og fór laaaaaaangur tími í þetta dæmi.
Nú er bara að horfa á Stundina okkar á næstunni og sjá krakkana.
Flettingar í dag: 38
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 39
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 180948
Samtals gestir: 38336
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:33:43